Sértækar andlitsmeðferðir
Pro Power Peel 60 Ávaxtasýrumeðferð
Pro Power Peel 30
Pro Power peel Táninga 50
Pro Power Eye Peel - Ávaxtasýrumeðferð fyrir augnsvæðið
Pro Retinol
Dermalogica Dermaplaning
Pro Dermalogica Dermaplaning
Nanónálameðferð
Pro Microneedling - Örnálameðferð
Melanopro
Dermalogica MelanoPro er markviss og öflug meðferð fyrir þig sem glímir við litabreytingar og ójafnan húðlit í andliti (hyperpigmentation).
Litabreytingar myndast þegar melanín safnast upp í meira magni en venjulega og geta meðal annars stafað af hormónabreytingum, sól/UV-geislun eða eftir akne. MelanoPro nýtir blöndu af vel rannsökuðum, húðlýsandi virkum innihaldsefnum ásamt mildum, áferðarbætandi djúphreinsandi efnum til að jafna húðlit, slétta áferð og minnka sýnilega dökka bletti – oft með sýnilegum árangri á innan við 6 vikum.
Meðferðin fer fram yfir 4–6 vikur og þú færð sérhannaðar MelanoPro heimavörur sem eru lykilatriði í ferlinu. Áður en meðferð hefst, þá kemur þú í ítarlega ráðgjöf þar sem húðin er metin og þú færð faglega leiðsögn um ferlið og væntanlegan árangur.
Til að tryggja heilbrigði húðarinnar og hámarks árangur er mikilvægt að forðast sól á meðan á ferlinu stendur og ekki nota djúphreinsandi vörur, sýrur eða retínól á þessu tímabili.
